Krakkakrútt ehf.
- Krakkakrútt leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina, starfsmanna og annarra sem félagið vinnur persónuupplýsingar um.
- Krakkakrútt sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
- Stefna Krakkakrútt er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þá þjónustu sem félaginu ber að veita viðskiptavinum.
- Krakkakrútt ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um viðskiptavini á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
- Allar upplýsingar sem viðskiptavinir Krakkakrútt láta félaginu í té eða sem Krakkakrútt sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
Tilgangur persónuverndarstefnunnar
Með persónuverndarstefnu þessari er gerð grein fyrir því hvernig Krakkakrútt, stendur að söfnun, skráningu, vinnslu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um viðskiptavini sína og einstaklinga sem heimsækja vefsíðu félagsins, www.krakkakrutt.is, hvort sem persónuupplýsingarnar eru geymdar rafrænt, á pappír eða með öðrum hætti.
Persónuupplýsingar sem Krakkakrútt vinnur með
Krakkakrútt vinnur með eftirfarandi persónuupplýsingar um alla viðskiptavini:
Nafn, Netfang, heimilisfang, símanúmer
Krakkakrútt vinnur persónuupplýsingar um tengiliði viðskiptavina og starfsmenn þjónustufyrirtækja sem veita Krakkakrútt þjónustu. Einungis eru unnar upplýsingar um netföng og símanúmer í þeim tilgangi að auðvelda samskipti, gæta lögmætra hagsmuna félagsins og réttinda viðskiptavina.
Til að eyða þinum gögnum þá getur þú haft samband hér
Vafrakökur
Við heimsókn á vefsíðu Krakkakrútt eru skráðar nauðsynlegar upplýsingar um aðgengi og notkun í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda af þjónustunni, til dæmis með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra. Þessar upplýsingar kunna að innihalda IP-tölur notanda. Þessi síða notar einnig vafrakökur fyrir nauðsynlega virkni og söfnun tölfræðiupplýsinga.
Vafrakökur sem vefsíðan notar eru:
_GID – Skráir einkvæmt auðkenni sem er notað til að búa til tölfræðileg gögn um heimsóknir gests á vefinn. (Gildistími: Lota (e. Session))
_GA – Skráir einkvæmt auðkenni sem er notað til að búa til tölfræðileg gögn um heimsóknir gests á vefinn. (Gildistími: 2 ár)
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fara í stillingar í þeim vafra sem notaður er til að heimsækja síðuna.
Varðveislutími og öryggi persónupplýsinga
Persónuupplýsingar eru varðveittar svo lengi sem þeirra er þörf til að ná þeim tilgangi sem söfnun þeirra fólst í, nema að lagaskylda hvíli á félaginu um að geyma þau lengur.
Upplýsingar sem berast á tölvupósti til félagsins eru geymdar í 3 ár að jafnaði
Bókhaldsskyld gögn eru geymd í 7 ár
Upplýsingum um störf trúnaðarmanna á vinnustöðum er ekki eytt, það er upplýsingum um störf fyrir félagið og þau námskeið sem viðkomandi hefur sótt í tengslum við starf trúnaðarmanns. Það er gert til að tryggja að upplýsingar um námsferil viðkomandi séu aðgengilegar hefji hann aftur störf sem trúnaðarmaður síðar.
Skilagreinum, þ.e. upplýsingum um iðgjaldagreiðslur, er ekki eytt þar sem nauðsynlegt er að varðveita þær svo félagið geti tryggt og staðfest réttindi viðskiptavina, bæði núverandi og fyrrum.
Ef skráður einstaklingur hættir í félaginu er öðrum upplýsingum en þeim sem eru tilgreindar hér að ofan að jafnaði eytt eftir 6 mánuði.
Krakkakrútt gætir fyllsta öryggis við vinnslu persónuupplýsinga. Aðgangsstýringar eru viðhafðar til að takmarka aðengi að persónuupplýsingum og upplýsingar vistaðar á öruggan hátt hjá vinnsluaðilum félagsins. Sterk auðkenning er að á heimasvæði viðskiptavina, Mínar síður, og upplýsingum sem vistaðar eru þar er haldið í lágmarki.
Endurskoðun
Krakkakrútt áskilur sér rétt til að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu Krakkakrútt.